Um okkur
Verkefnisyfirlit
Green league stefnir á að styrkja tenginguna milli íþrótta og umhverfis með tilraunanám og með því að að hvetja til útivistar og líkamsræktar sem styður við umhverfisvitund og sjálfbæra ástundun íþrótta.
Green league verkefnið vill leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn hlýnun jarðar og hvetja um leið til heilsueflingar og íþróttaiðkunar.
Markmið
Green league stefnir á að styrkja tenginguna milli íþrótta og umhverfis með tilraunanámi og með því að hvetja til hreyfingar, auka umhverfisvitund og sjálfbærrar íþróttaiðkunnar.
- Auka hæfni fagaðila í íþróttum í Evrópu til að hvetja til útvistar og hreyfingar en um leið undirstrika mikilvægi umhverfisverndar með því að nýta opið námsefni og aðferðri sem þróaðar verða í Green League verkefninu.
- Hanna og standa fyrir viðburðum sem eru innblásnir af frumkröftum náttúrunnar (Nature’s Four elements). Þessum viðburðum er ætlað að auka umhverfisvitund ungs fólks, fjölskyldna þeirra og áhugafólks um íþróttir og útivist með aðferðum tilraunanáms. r
- Samstarf við ungmenna- og íþróttafélög og önnur áhugamannafélög því að setja upp Green League íþróttamót og verkefni tengd umhverfisvernd.
- Miðla afurðum og árangri verkefnisins og á sama tíma hvetja til og taka þátt í almennri umræðu um hlutverk og markmið íþrótta- og útivistarfélaga er kemur að umhverfisvernd og hvernig nýta má Green League verkefnið í því starfi.
Aðferðarfræði
Verkþættir og niðurstöður Green league verkefnisins styðjast við við ólíka aðferðarfræði
Þáttöku og samstarfs aðferðin: Gegnum fjölþjóðlega vinnustofu munu þáttakendur og samstarfsaðilar ekki bara öðlast þekkingu á umhverfisvænum íþróttum heldur líka læra af reynslu, væntingum,og gildum annara þáttakanda með það markmið að innleiða aðferðafræði evrópska Green League samstarfsins í sínu starfi.
Upplifunarnám í og í gegnum náttúruna: Fyrir íþróttaviðburði Nature’s Four Elements munu atvinnumenn/áhugamenn í íþróttum, ungt fólk og fjölskyldur þeirra auk annarra þátttakenda sem hafa áhuga á að taka þátt velta fyrir sér hvernig íþróttir hafa áhrif á umhverfið og möguleikum til að hafa áhrif til breytta þeim til að vera sjálfærari. Á 8 viðburðum munu þátttakendur íhuga persónuleg tengsl sín við náttúruleg vistkerfi, læra um virkni þeirra og þarfir og í sameiningu hugleiða hvernig þeir geta dregið úr umhverfisáhrifum sínum.
Að læra með því að leika og taka þátt: á lókal íþróttamótum mun íþróttafélög og ungir íþróttamenn taka þátt í íþrótta- og umhverfiskeppnum fá tækifæri til að læra um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir umhverfinu og á sama tíma taka þátt í liðakeppni og umhverfisboðhlaupi. Þó að athygli þeirra muni beinast að því að vinna keppnirnar mun hið stigakerfið verða byggt á stigagjöf sem grundvallast bæði á mati á umhverfisvitund og og íþróttaafrekum til að tryggja að þeir læri líka að náttúruvernd geti verið skemmtileg og hvetjandi.
Stuðningur og þátttaka íþróttahreyfingarinnar: Aðferðafræðin á bak við hönnun og framkvæmd Green Champions herferðarinnar byggir á beinni þátttöku bæði íþróttamanna og samfélagsins sem tekur þátt í Green League viðburðum. Þetta tryggir að gildum og skilaboðum verkefnisins sé komið á framfæri innan íþróttahreyfingarinnar og frá henni til íþróttafélaga, til að auka virkni og áhrif myndbands- og myndaskilaboða sem miða að því að hvetja fólk til þátttöku í gegnum samfélagsmiðla og Green League vefsíðuna.
List og sjónræn frásögn: Í gegnum Nature’s Four Elements íþróttaviðburði verður Zine þróað sem leið til að skrásetja íþróttaviðburði og dreifa upplýsingum um Green League víða. Þátttakendur íþróttaviðburða munu leggja sitt af mörkum óbeint til innihalds Zine-nna með því að skrásetja augnablik og viðburði sem og til að skiptast á hugmyndum, einnig með því að safna ýmsu efnum (fjöður, rusli o.s.frv.) sem þeir safna í sinni útivist og íþróttaiðkun og hægt er að endurnýta í skapandi hátt.
Útkomur
- 1 alþjóðlegt vinnustofa fyrir fagfólk í íþróttum: samvinnu um þróun á þjálfuninni , Green League þjálfuninni, sem miðar að því að auka útivist og íþróttaiðkun sem styður um leið við fræðslu um um umhverfismál.
- 8 Nature’s 4 Elements Íþróttaviðburðir: Íþróttaviðburðir innblásnir af 4 frumkröftum náttúrannar til að auka íþróttaiðkun og stuðla að aukinni umhverfisvitund.
- Íþrótttamót Green League í þátttökulöndunum: Minni mót í hópíþróttum svo sem boðhlaupum sem tvinna saman íþróttir og átaksverkefni tengd umhverfinu.
- Græn Meistaramót: Herferð til að stuðla að vitundarvakningu um hlutverk íþrótta í að efla umhverfisvitund. (myndbandaröð og heimildarmynd).
- Green League þjálfunin.
Samstarfsaðilar
CESIE (sem leiðir verkefnið) er evrópsk miðstöð fræðslu og samfélagsþróun með aðsetur í Palermo, þau hafa rka sérfræðiþekkingu á sviði félagslegrar þátttöku í gegnum íþróttir, og stýra nokkrum verkefnum sem miða að því að þróa leiðir til að auka borgaralega, félagslega, menningarlega og efnahagslega þátttöku í gegnum íþróttir. CESIE reiðir sig á traust tengslanet hagsmunaaðila/fagfólks í íþróttum, æskulýðsstarfi og stefnumótandi aðila, bæði á vettvangi sveitarfélaga og ESB. CESIE leiðiri verkefnið og mun styðja við aðra samstarfsaðila, leiða vinnupakka 1 er snýr að verkefnastjórn og vinnupakka 4 – Green Leagues: Umhverfisvæna landsmótið.
Vivi Sano Onlus er félag sem vinnur að því að efla félagslega og líkamlega vellíðan með heilsutengdu óformlegu námi með áherslu á jaðarsetta þjóðfélagshópa.. Félagið er með aðsetur í Palermo þar sem þau hafa endurbyggt opinber svæði í miðbæ Palermo og breytt í almenningsgarð (Parco della Salute) þar sem reglulega er staðið fyrir heilsueflingu og íþróttastarfi. Samtökin munu styðja CESIE í framkvæmd verkefnisins á Ítalíu, leiða vinnupakka 4 (WP4) og hýsa íþróttaviðburði Green League oglokaverðlaunaafhendinguna á íþróttasvæðum sínum. (WP5).
APGA er frjáls félagasamtök og sjálfseignarstofnun sem leggur áherslu á rannsóknir, þróun og hagnýt verkefni á sviði heilsueflingar og hreyfingar. Byggt á sérþekkingu sinni hafa samtökin byggt upp samstarfi við lykil hagaðila í sínu nærumhverfi og á landsvísu svo sem opinbera stjórnsýslu, fyrirtæki, fjölmiðla, frjáls félagasamtök, samtök íþróttafélaga élög, Ólympíunefnd og yfir 100 íþróttafélög.
KMOP er grísk félagasamtök með aðsetur í Aþenu sem vinna að því að byggja upp seiglu og stuðla að félagslegum og jöfnum vexti með sínu fræðslustarfi auk þess að veita félagslegan stuðning í dreifbýli. Samtökin búa yfir sérfræðiþekkingu á sviði inngildingar, heilsueflingar og velferðar og byggja á traustu tengslanet í sínu nærumhverfi og í Evrópu við æskulýðssamtök og aðra hagaðila.
EINURÐ eru samfélagsfyrirtæki sem vinnur að menntun og samfélagslegri nýsköpun með aðsetur í Reykjavík og Reykjanesbæ. Það hefur umtalsverða reynslu af verkefnum tengd inngildingu, heilsueflingu og valdeflingu fyrir alla fyrir alla aldurshópa. Fyrirtækið hefur hefur tekið þátt í verkefnum tengdum sjálfbærni og samfélagsþróun svo sem Urban Gardening auk þess að styðja við samfélagslega nýsköpun og sjálfbærni. Einurð vinnur með gönguklúbbnum Vesen og Vergangi í verkefninu en klúbburinn hefur verið brautryðjandi í að hvetja almenning til útivistar þar sem tekið er tillit til umhverfisstjónarmiða og náttúruverndar.
CARDET is a non-profit education for development centre based in Nicosia with core expertise in the design of training programmes to educate people about the environment, supporting them to attain the skills and knowledge to adopt eco-friendly and sustainable practices. The array of networks built by CARDET includes both local and EU contacts, ranging from the Cypriot Ministry of Education, Culture, Sport, and Youth, and to schools, sports clubs, and private and public authorities in Cyprus and the EU.
CARDET er fræðslusetur fyrir þróunarstarf sem ekki er rekið í hagnaðarskyni með aðsetur í Nikósíu með grunnþekkingu í hönnun náms tengt umhverfisvernd og auka færni og þekkingu á vistvænum og sjálfbærum starfsháttum. CARDET hefur byggt upp fjölda tengslaneta sem fela í sér bæði tengingu við innlenda og erlenda aðila og hagaðila innan ESB, allt frá mennta-, menningar-, íþrótta- og æskulýðsráðuneyti í Kýpur til skóla, íþróttafélaga og einkaaðila og annarra opinberra yfirvalda á Kýpur og innan ESB.